Heimurinn hjá Jako

Velkomin til mín.....

20.08.2008 23:12:09 / jako74

Smá flutningur - tilraun

Ég er að pæla sameina barnalandsíðuna og þetta ofurvikra blogg.  Núna er ég staðsett á www.123.is/kriuas17a

Kv. Jako - bless í bili


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.06.2008 17:20:09 / jako74

Litli frændi

Litli frændi minn heitir Eiður Reykjalín Hjelm.

Kv. Stolt föðursysti 8)

» 0 hafa sagt sína skoðun

30.05.2008 10:39:42 / jako74

2 ára

Litla daman mín varð 2 ára í gær, réttara sagt klukkan 17:56 í gær.  Og þessi dagur var eftirminnilegur, og á eftir að tala um hann mikið.... 8)

Kv. Jako (ég á 6 ára strák og 2 ára stellur )



» 1 hafa sagt sína skoðun

27.04.2008 13:11:10 / jako74

Aumingja Friðrik

Það er svo gaman af Friðriki núna.  Hann er að horfa á Formúluna og er rosalega svekktur.  Þeir voru nefnilega að tala um það í vetur, hann, pabbi og Alli bróðir að fara á Frmúlu í sumar og formúlan í Barcelona var í fyrsta sæti hjá þeim.  En þeir ákvaðu að fresta því, því Ellý var sett 12 apríl og hefði getað gengið fram yfir.  Og svo kom í ljós að sá sem Friðrik er að vinna með var akkúrat í fríi þegar keppnin er.  En núna þarf hann að horfa á keppnina í sjónvarpinu, og hann er alltaf að tala um að hann hefði geta setið þarna og verið að horfa á það með berum augum í hitanum.
Aumingja Friðrik.

Kv. Jako



» 0 hafa sagt sína skoðun

12.04.2008 08:56:09 / jako74

Litli frændi minn er mættur á svæðið!!!

Ellý er búin að eiga... og ekki smá fljót að því.  Þau voru hérna í gærkvöldi, elduðum kvöldmat saman.  Svo um 8 leytið (minnir mig) fóru þau yfir til sín.  Svo allt í um hálf 2 í nótt kemur Alli yfir til þess að fá myndavélina sína og segist vera á leiðinni til Keflavíkur.  Þau bruna af stað og svo var litli frændi mættur um 3:30.  Hún náði að eiga hann í vatni eins og Simma.  Það var ekki búið að vigta hann þegar ég talaði við Alla í nótt,   Ég hef ekkert viljað hringja í þau í morgun... vil ekki vekja þau.  Svo voru þau svo heppinn að Simmi var að gista  nóttina hjá vini sínum, svo þau þurftu ekki að hafa áhyggjur af honum. 

Kv. Jako


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.04.2008 21:11:50 / jako74

Harðsperrur

Ég er að drepast úr harðsperrum í dag.:cry:.... er í vandræðum að sitjast og standa upp :s.... og svo er ég að fara í keilu á morgun með vinnunni... ég á ekki eftir að fella margar keilur þar.

Kv. Jako


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.04.2008 17:07:53 / jako74

Einkaþjálfari

Svoldið langt síðan ég skrifaði seinast...... mikið gerst en það sem er merkilegast er að ég byrjaði í vikunni hjá einkaþjálfara.  Við erum að vísu 5 saman hjá honum.  En það besta með þetta allt er að vinnan borga fyrir einkaþjálfarann. 
Við slóum saman í pott (1000 kr á mann), og sá/sú vinnur pottinn sem missir mesta fituprósentu (hlutfallslega).  Án þess að segja eitthvað mikið um fituprósentuna mína þá er hún bara allt allt allt of há.... en skulum vona að hún eigi eftir að minnka.

Kv. Jako íþróttafrík


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.02.2008 21:21:57 / jako74

Tvær flugur í einu höggi

Kolbrún Sara náði að smita bróðir sinn líka....


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.02.2008 10:56:29 / jako74

Gubb Gubb

Kolbrún Sara náði að smita mömmu sína.... ekki gaman.

Kv. Jako:^)


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.02.2008 22:30:20 / jako74

Ræktin

Fór í ræktina áðan (frá 21-22) var engan vegin að nenna því... en ég náði að púla í 1 klst... ógeðslega stolt. 8)

Kv. Jako


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.02.2008 22:38:03 / jako74

Skemmtilegt á föstudagskvöldi

Gaman þegar er komið manni á óvart.  Friðrik er með vinum sínum (bræður hans Magga sem við ætlum að heimsækja í sumar) og þeir eru í einhverjum sumarbústað að Lana (tengja tölvurnar saman og spila einhvern byssuleik).  Haldið þið ekki að Maggi hafi birtst allt í einu þarna (tek það fram aftur Maggi býr í Danmörk).  Þá ákváðu þau skötuhjúin að koma mjög óvænt hingað til Íslands og vera hérna í viku (það er nefnilega vetrafrí á Jótlandi þessa vikuna).  Svo ég hringdi strax heim til foreldra hans Magga og þar var Pía, Selma og Alex.  Við vorum akkúrat þá á McDonalds, svo það var borðað  mjög hratt og brunað upp í Breiðholt að heimsækja þau.  Þetta var mjög skemmtileg ánægja á föstudagskvöldi....

Kv. Jako - sem á strák sem er orðinn 6 ára.



» 0 hafa sagt sína skoðun

08.02.2008 12:01:21 / jako74

VW yfir í Toyota

Það lítur út fyrir það að við þurfum að fara kaupa okkur Toyota.... Friðrik var að segja upp í vinnunni sinni og er búinn að fá vinnu hjá Toyota.. gaman gaman, það verður fjör í fjölskylduboðunum núna því eins og þið vitið vinnur Alli bró hjá Heklu...8)
 
Kv. Jako - sem er niðurdregin yfir því hvað er lítið kommenterað hérna. :cry:

» 4 hafa sagt sína skoðun

25.01.2008 21:29:04 / jako74

Hhhhhmmm

Ekki missa ykkur í að kommenter á seinustu færslu.. ég hef ekki undan að lesa hugmyndirnar :lol:

Kv. Jako


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.01.2008 23:04:57 / jako74

Afmælisleikir

Það fer að líða að því að við höldum upp á 6 ára afmælið hans Róbert (OMG hvað tíminn er fljótur að líða).  En við ætlum að bjóða hópnum hans í leikskólanum í afmæli, þau eru 14 stykki (búin að reyna að fá hann til þess að bjóða bara strákana.. en það kemur ekki til greina hjá honum).  Svo mig vantar upp ástungun um einhverja skemmtilega afmælisleiki...  Ég er nefnilega alvega blanko.  Endilega komið með uppástungur í Kommentin.

Kv. Jako ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.01.2008 21:25:46 / jako74

Þvílíkt púl

Að fara að draga 2 stykki börn á snjósleða er hörkupúl. Ég er byrjuð að nota árskorið, en ég held að ég sleppi að fara í dag..... búin með mitt púl. Kv. Jako

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Næsta afmæli í fjölskyldunni
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1351 dögum
Kolbrún Sara 2 ára
Síðast innskráður
Ég var síðast inni þann 20 ágúst
Heimsóknir
Í dag:  2  Alls: 23618
Kraftaverkin mín
Síður sem ég skoða oft